Prédikarinn 8:1–17
8 Hver jafnast á við hinn vitra? Hver kann að leysa vandamál?* Viska manns endurspeglast í andliti hans og mildar hörkulegan svipinn.
2 Ég segi: „Hlýddu skipunum konungs vegna eiðsins sem þú sórst Guði.
3 Flýttu þér ekki burt frá honum. Taktu ekki afstöðu með því sem er illt því að hann getur gert allt sem hann vill.
4 Orð konungs eru lög. Hver getur spurt hann: ‚Hvað ertu að gera?‘“
5 Ekkert illt hendir þann sem hlýðir fyrirmælunum, og vitur maður veit hvenær og hvernig á að taka á málum.*
6 Mennirnir glíma við mörg vandamál en hvert mál hefur sinn tíma og sína aðferð.*
7 Enginn veit hvað mun gerast. Hver getur þá sagt hvernig það gerist?
8 Enginn hefur vald yfir lífsandanum* né getur haldið í hann þannig að enginn ræður dánardeginum. Enginn er sendur heim í miðju stríði og eins leyfir illskan hinum illu ekki að komast undan.*
9 Allt þetta hef ég séð og ég velti fyrir mér öllu sem gert er undir sólinni. Alla tíð hefur einn maður drottnað yfir öðrum honum til tjóns.
10 Ég sá illa menn jarðaða, menn sem voru vanir að koma á hinn heilaga stað, en þeir gleymdust fljótt í borginni þar sem þeir höfðu aðhafst hið illa. Þetta er líka tilgangslaust.
11 Ef mönnum er ekki refsað fljótt fyrir vond verk sín vex þeim kjarkur til að gera það sem er illt.
12 Þó að syndari geri það sem er illt hundrað sinnum og lifi samt lengi veit ég að þeim sem óttast hinn sanna Guð vegnar vel af því að þeir óttast hann.
13 En hinum illa vegnar ekki vel né getur hann lengt líf sitt sem er eins og hverfull skuggi þar sem hann óttast ekki Guð.
14 Eitt sem gerist á jörðinni er ergilegt:* Stundum er farið með réttláta eins og þeir hafi gert eitthvað illt og stundum er komið fram við illmenni eins og þau hafi gert það sem er gott. Ég segi að þetta sé líka tilgangslaust.
15 Ég lofaði gleðina því að ekkert er betra fyrir manninn undir sólinni en að borða og drekka og vera glaður. Það ætti að fylgja honum meðan hann stritar alla ævidaga sína sem hinn sanni Guð gefur honum undir sólinni.
16 Ég einsetti mér að afla mér visku og fylgjast með öllu sem menn taka sér fyrir hendur á jörðinni og ég svaf hvorki nótt né dag.*
17 Ég hugsaði um allt sem hinn sanni Guð gerir og áttaði mig á að mennirnir geta ekki skilið það sem gerist undir sólinni. Hvað sem þeir reyna ná þeir ekki að skilja það. Jafnvel þótt þeir segist vera nógu vitrir til þess skilja þeir það ekki til fulls.
Neðanmáls
^ Eða „getur útskýrt mál“.
^ Eða „þekkir bæði tíma og dóm“.
^ Eða „sinn dóm“.
^ Eða „andardrættinum; vindinum“.
^ Eða hugsanl. „getur illskan ekki bjargað hinum illu“.
^ Eða „tilgangslaust“.
^ Eða hugsanl. „og veldur því að þeir sofa hvorki nótt né dag“.