Jobsbók 34:1–37

  • Elíhú ver réttlæti Guðs (1–37)

    • Job fullyrti að Guð neitaði honum um réttlæti (5)

    • Hinn sanni Guð gerir ekkert illt (10)

    • Job skortir skilning (35)

34  Elíhú hélt áfram og sagði:   „Heyrið orð mín, þið vitru menn,hlustið á mig, þið sem vitið svo mikið.   Eyrað prófar orðineins og tungan* smakkar matinn.   Við skulum vega og meta hvað er rétt,við skulum koma okkur saman um hvað er gott.   Job hefur sagt: ‚Ég hef rétt fyrir méren Guð leyfir mér ekki að njóta réttlætis.   Myndi ég ljúga til um hvaða dóm ég ætti að fá? Sár mín eru ólæknandi þótt ég hafi ekki brotið af mér.‘   Hvaða maður er eins og Jobsem svelgir í sig móðganir eins og vatn?   Hann umgengst syndaraog blandar geði við vonda menn.   Hann hefur sagt: ‚Maðurinn hefur engan hag af þvíað reyna að þóknast Guði.‘ 10  Hlustið á mig, þið skynsömu menn: Það er óhugsandi að hinn sanni Guð geri nokkuð illt,að Hinn almáttugi geri nokkuð rangt! 11  Hann launar manninum eftir verkum hansog lætur hann taka afleiðingum gerða sinna. 12  Nei, Guð gerir aldrei neitt illt,Hinn almáttugi fellir ekki rangláta dóma. 13  Hver fól honum umsjón með jörðinniog setti hann yfir allan heiminn?* 14  Ef hann beindi athygli sinni að mönnunum,ef hann tæki aftur til sín anda þeirra og andardrátt, 15  myndu menn deyja allir sem einn*og mannkynið snúa aftur til moldarinnar. 16  Ef þú hefur skilning skaltu taka vel eftirog hlusta á það sem ég segi. 17  Ætti sá sem hatar réttlætið að stjórnaeða myndirðu fordæma réttlátan valdamann? 18  Myndirðu segja við konung: ‚Þú ert ónytjungur,‘ eða við tignarmann: ‚Þú ert illmenni‘? 19  Sá er til sem er ekki hliðhollur höfðingjumog tekur ekki ríka fram yfir fátækaþví að þeir eru allir handaverk hans. 20  Þeir geta dáið skyndilega, um miðja nótt,þeir hríðskjálfa og gefa upp andann.Jafnvel valdamenn eru hrifnir burt en ekki af mannavöldum. 21  Augu Guðs hvíla á vegum mannsins,hann sér hvert skref sem hann stígur. 22  Hvergi er myrkur eða dimmur skuggiþar sem syndarar geta falið sig. 23  Guð hefur ekki ákveðið nokkrum manni tímatil að koma fyrir dómstól sinn. 24  Hann þarf ekki að yfirheyra valdamenn áður en hann eyðir þeimog setur aðra í þeirra stað 25  því að hann veit hvað þeir gera.Hann sviptir þá völdum að nóttu og þeim er tortímt. 26  Hann refsar þeim fyrir illsku þeirraí allra augsýn 27  því að þeir eru hættir að fylgja honumog hafa engan áhuga á vegum hans. 28  Þeir valda því að fátækir hrópa til Guðs,að hann heyrir neyðaróp hinna bágstöddu. 29  Hver getur fordæmt Guð þegar hann er þögull? Hver getur séð hann þegar hann hylur andlitið? Hvort sem þjóð eða maður á í hlut er útkoman sú sama: 30  Guðlaus maður* fær ekki að stjórnaeða leggja gildrur fyrir fólkið. 31  Getur nokkur sagt við Guð:‚Mér er refsað þó að ég hafi ekki gert neitt af mér. 32  Bentu mér á það sem ég sé ekki.Ef ég hef gert eitthvað rangt skal ég ekki endurtaka það‘? 33  Á hann að launa þér eftir þínum skilyrðum þegar þú hafnar úrskurði hans? Þú þarft að svara því, ekki ég. Segðu mér hvað þú veist. 34  Vitrir og skynsamir menn,allir sem heyra til mín, munu segja við mig: 35  ‚Job veit ekki hvað hann er að tala um,orð hans vitna um skilningsleysi.‘ 36  Látið* reyna Job til hins ýtrastaþví að hann svarar eins og vondir menn svara. 37  Hann bætir mótþróa ofan á synd sína,hann klappar saman höndum með háði frammi fyrir okkurog heldur langar ræður gegn hinum sanna Guði!“

Neðanmáls

Orðrétt „gómurinn“.
Eða „yfir heimsbyggðina“.
Orðrétt „myndi allt hold deyja“.
Eða „Fráhvarfsmaður“.
Eða hugsanl. „Faðir minn, láttu“.