Hósea 4:1–19

  • Jehóva höfðar mál gegn Ísrael (1–8)

    • Engin þekking á Guði í landinu (1)

  • Skurðgoðadýrkun og lauslæti Ísraels (9–19)

    • Lauslætisandi leiðir afvega (12)

4  Heyrið orð Jehóva, Ísraelsmenn,því að Jehóva höfðar mál gegn íbúum landsinsþar sem enginn sannleikur er í landinu, enginn tryggur kærleikur né þekking á Guði.   Falskir eiðar, lygar og morð,þjófnaður og hjúskaparbrot eru útbreiddog hvert manndrápið tekur við af öðru.   Þess vegna mun landið syrgjaog allir íbúar þess veslast upp. Villtum dýrum jarðar og fuglum himinsog meira að segja fiskum hafsins verður svipt burt.   „Enginn skal þó þræta né ávítaþví að fólk þitt er eins og þeir sem þræta við prest.   Þú munt hrasa um hábjartan dagog spámaðurinn hrasar með þér eins og það væri nótt. Ég mun þagga niður í móður þinni.*   Þaggað verður niður í fólki mínu* því að þekkingin er engin. Þar sem þú hefur hafnað þekkingu*hafna ég þér líka sem presti mínum. Og þar sem þú hefur gleymt lögum Guðs þínsgleymi ég sonum þínum.   Því fleiri sem þeir* urðu því meira syndguðu þeir gegn mér. Ég breyti vegsemd þeirra í vansæmd.*   Þeir nærast á synd fólks mínsog eru sólgnir í afbrot þess.   Þjóðin hlýtur sama hlutskipti og prestarnir. Ég dreg hana til ábyrgðar fyrir hegðun sínaog læt hana gjalda fyrir verk sín. 10  Hún mun borða en ekki verða södd. Hún verður lauslát* en henni mun ekki fjölgaþví að hún hefur hunsað Jehóva. 11  Vændi,* gamalt vín og nýttsviptir burt hvötinni til að gera rétt.* 12  Þjóð mín ráðfærir sig við skurðgoð sín úr tréog gerir það sem stafur hennar* segir henni. Já, lauslætisandinn* leiðir hana afvegaog með vændi* sínu svíkur hún Guð sinn. 13  Hún færir fórnir efst uppi á fjöllunumog lætur fórnarreyk stíga upp á hæðunum,undir eikum og stýraxtrjám og hverju stóru tréþví að skuggi þeirra er góður. Þess vegna stunda dætur ykkar vændi*og tengdadætur ykkar fremja hjúskaparbrot. 14  Ég mun hvorki draga dætur ykkar til ábyrgðar fyrir vændi* sittné tengdadætur ykkar fyrir hjúskaparbrot sínþví að karlarnir fara afsíðis með vændiskonumog færa fórnir með musterishórum. Þess konar fólk, sem skilur ekki neitt, mun steypa sér í glötun. 15  Þótt þú stundir vændi,* Ísrael,skal Júda ekki baka sér sekt. Farið ekki til Gilgal eða til Betavenog sverjið ekki: ‚Svo sannarlega sem Jehóva lifir!‘ 16  Ísrael er orðinn þrjóskur eins og þrjósk kýr. Á Jehóva nú að halda honum á beit eins og hrútlambi í víðlendum haga? 17  Efraím hefur bundist skurðgoðum. Látið hann eiga sig! 18  Þegar hann er búinn með bjórinn*verður hann lauslátur.* Og leiðtogar* hans elska ósómann. 19  Vindurinn vefur honum inn í vængi sína*og hann mun skammast sín fyrir fórnir sínar.“

Neðanmáls

Eða „gera út af við móður þína“.
Eða „Gert verður út af við fólk mitt“.
Eða „fræðslu; leiðsögn“.
Vísar sennilega til prestanna.
Eða hugsanl. „Þeir skiptu dýrð minni fyrir smán“.
Eða „verður yfirgengilega siðlaus; stundar vændi“.
Eða „Siðleysi; Lauslæti“.
Orðrétt „tekur hjartað burt“.
Eða „stafur spásagnarmannsins“.
Eða „siðleysisandinn; vændisandinn“.
Eða „siðleysi; lauslæti“.
Eða „siðleysi; lauslæti“.
Eða „siðleysi; lauslæti“.
Eða „siðleysi; lauslæti“.
Eða „hveitibjórinn“.
Eða „verður hann yfirgengilega siðlaus; stundar hann vændi“.
Orðrétt „skildir“.
Eða „sópar honum burt með vængjum sínum“.