Síðari Kroníkubók 16:1–14
16 Á 36. stjórnarári Asa hélt Basa Ísraelskonungur í herferð gegn Júda og hófst handa við að víggirða* Rama til að enginn kæmist til eða frá Asa Júdakonungi.*
2 Þá tók Asa silfur og gull úr fjárhirslum húss Jehóva og konungshallarinnar og sendi það til Benhadads Sýrlandskonungs sem bjó í Damaskus. Hann lét flytja honum þessi boð:
3 „Sáttmáli er milli mín og þín og milli föður míns og föður þíns. Ég sendi þér þetta silfur og gull. Rjúfðu nú sáttmála þinn við Basa, konung í Ísrael, svo að hann dragi sig til baka frá mér.“
4 Benhadad gerði eins og Asa konungur bað um og sendi hershöfðingja sína til að ráðast á borgir Ísraels. Þeir tóku Íjón, Dan, Abel Maím og allar birgðageymslurnar í borgum Naftalí.
5 Um leið og Basa frétti þetta hætti hann að víggirða Rama og stöðvaði framkvæmdirnar.
6 Asa konungur kallaði síðan saman alla Júdamenn. Þeir fluttu burt steinana og timbrið sem Basa hafði notað til að víggirða Rama. Hann notaði það síðan til að víggirða* Geba og Mispa.
7 Um þetta leyti kom Hananí sjáandi til Asa Júdakonungs og sagði: „Af því að þú treystir á* Sýrlandskonung en ekki á Jehóva Guð þinn hefur her Sýrlandskonungs gengið þér úr greipum.
8 Voru ekki Eþíópíumenn og Líbíumenn mikill her með marga stríðsvagna og riddara? En Jehóva gaf þá í hendur þínar af því að þú treystir á hann.
9 Augu Jehóva skima um alla jörðina til að hann geti beitt mætti sínum í þágu þeirra* sem þjóna honum af öllu hjarta. Þú hefur farið heimskulega að ráði þínu í þessu. Héðan í frá munu menn stöðugt heyja stríð við þig.“
10 En Asa sármóðgaðist og lét varpa sjáandanum í fangelsi* af því að hann var svo reiður út í hann. Um svipað leyti fór hann að beita ýmsa af þjóðinni hörku.
11 Saga Asa frá upphafi til enda er skráð í Bók Júda- og Ísraelskonunga.
12 Á 39. stjórnarári sínu varð Asa veikur í fótum. Hann varð alvarlega veikur en jafnvel þá sneri hann sér ekki til Jehóva heldur til lækna.
13 Asa var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum. Hann dó á 41. stjórnarári sínu.
14 Hann var jarðaður í miklu grafhýsi sem hann hafði látið höggva út handa sér í Davíðsborg. Hann var lagður á líkbörur sem voru fylltar balsamolíu og sérstöku smyrsli úr alls konar kryddjurtum og ilmolíum. Gríðarmikið bál var kveikt honum til heiðurs.*
Neðanmáls
^ Eða „endurreisa“.
^ Eða „til að koma í veg fyrir að nokkur yfirgæfi eða kæmist inn á svæði Asa Júdakonungs“.
^ Eða „endurreisa“.
^ Orðrétt „studdist við“.
^ Eða „stutt þá“.
^ Orðrétt „stokkhúsið“.
^ Hér er sennilega ekki átt við að lík Asa hafi verið brennt heldur kryddjurtir.