Fyrri Samúelsbók 31:1–13
-
Sál og þrír synir hans deyja (1–13)
31 Filistear herjuðu nú á Ísrael. Ísraelsmenn flúðu undan þeim en margir voru felldir á Gilbóafjalli.
2 Filistear eltu Sál og syni hans og drápu Jónatan, Abínadab og Malkísúa syni Sáls.
3 Sál átti nú í vök að verjast. Bogaskytturnar komu auga á hann, hæfðu hann og særðu hann illa.
4 Þá sagði Sál við skjaldsvein sinn: „Dragðu sverð þitt og rektu mig í gegn. Annars koma þessir óumskornu menn, stinga mig á hol og fara hrottalega með mig.“ En skjaldsveinninn vildi það ekki því að hann var lafhræddur. Sál tók þá sverð sitt og lét sig falla á það.
5 Þegar skjaldsveinninn sá að Sál var dáinn lét hann sig líka falla á sverð sitt og dó með honum.
6 Þannig dóu Sál, synir hans þrír, skjaldsveinn hans og allir menn hans þennan sama dag.
7 Þegar Ísraelsmönnum sem bjuggu í dalnum* og á Jórdansvæðinu varð ljóst að hermenn Ísraels voru flúnir og Sál og synir hans dánir yfirgáfu þeir borgir sínar og flúðu. Filistear komu síðan og settust að í þeim.
8 Daginn eftir, þegar Filistear komu til að ræna þá sem höfðu fallið, fundu þeir lík Sáls og sona hans þriggja á Gilbóafjalli.
9 Þeir hjuggu af honum höfuðið og klæddu hann úr herklæðunum.* Síðan sendu þeir menn um allt land Filistea til að flytja fréttirnar í húsum* skurðgoða sinna og bera þær út meðal fólksins.
10 Þeir lögðu herklæði hans í hof Astarte og festu lík hans á borgarmúrinn í Bet San.
11 Þegar íbúarnir í Jabes í Gíleað fréttu hvað Filistear höfðu gert við Sál
12 lögðu allir hermenn borgarinnar af stað, gengu alla nóttina og tóku lík Sáls og sona hans niður af múrnum í Bet San. Síðan sneru þeir aftur til Jabes og brenndu líkin þar.
13 Því næst grófu þeir beinin undir tamarisktrénu í Jabes og föstuðu í sjö daga.