29 ELÍA

„Guð minn er Jehóva“

„Guð minn er Jehóva“

SAGT hefur verið um Elía að hann komi inn í biblíusöguna eins og þruma úr heiðskíru lofti. Saga tíuættkvíslaríkisins Ísraels var ein samfelld hörmungarsaga illra konunga. Akab var sá sjöundi í röðinni og í augum Jehóva var hann verstur þeirra allra. Hann giftist prinsessu sem hét Jesebel og var frá Sídonlandi. Akab var skurðgoðadýrkandi en konan hans beitti sér fyrir sérstaklega ógeðfelldri útgáfu Baalsdýrkunar sem fól líklega í sér barnafórnir. En dag einn gengur Elía fyrir Akab. Jehóva hafði sent hann til að tilkynna konungi að hann ætlaði að refsa honum.

Sjáum Elía fyrir okkur á leið frá hrjóstrugu hálendi Gíleaðs til víggirtu borgarinnar Samaríu þar sem Akab hafði reist sér gríðarmikla höll. Hún var jafnvel kölluð ‚fílabeinshúsið‘, kannski vegna þess hve íburðarmikil hún var. (1. Kon. 22:39) Hugsum okkur Elía ganga inn í þessa glæsihöll. Hann er í grófgerðum fötum, gyrtur breiðu leðurbelti og færir konungi boðskap Jehóva. Hann segir honum að Jehóva láti þurrka koma yfir landið þannig að það komi ekki dropi úr lofti næstu árin – ekki fyrr en hann, spámaður Jehóva, tilkynni það. Elía þurfti að vera mjög hugrakkur til að flytja þennan boðskap. Hvers vegna? Vegna þess að hann segir efnislega að Baal, guðinn sem menn álitu færa regn, væri algjörlega máttlaus og myndi bregðast. Ef Jesebel var viðstödd hefur hún ekki tekið þessu vel.

Hvað gaf Elía hugrekki til að gera þetta? Að hluta til má ráða það af því sem hann sagði sjálfur. Hann hóf mál sitt með þessum orðum: „Svo sannarlega sem Jehóva Guð Ísraels lifir, sá sem ég þjóna.“ Hebresku orðin sem eru þýdd „sá sem ég þjóna“ merkja bókstaflega ‚sá sem ég stend frammi fyrir‘. Elía stóð frammi fyrir voldugum konungi. En hann hugsaði um annað sem var mun mikilvægara. Hann stóð í rauninni frammi fyrir Jehóva Guði sem þjónn hans. Akab og Jesebel virtust kannski voldug og ógnvekjandi en þau voru ekkert í samanburði við Jehóva. Þessi vitneskja hefur eflaust veitt Elía mikinn styrk.

Elía tókst á við illan konung, drottningu hans og uppreisnargjarna þjóð og hann reiddi sig á Jehóva þegar hann var hræddur.

Elía hélt áfram að sýna hugrekki í þjónustunni við Jehóva. Hann gerði það þegar hann hlýddi Jehóva og leitaði skjóls í afskekktum dal á tímum þurrka og hungursneyðar. Hann þurfti að treysta á að fá vatn úr litlum læk og að hrafnar færðu honum mat. Hann þurfti líka hugrekki þegar Jehóva sendi hann til Sídonar þar sem faðir Jesebelar réði ríkjum. Þar átti hann að hjálpa fátækri ekkju sem bjó yfir sterkri trú. Og Elía var einstaklega hugrakkur þegar hann stóð á Karmelfjalli sem fulltrúi Jehóva frammi fyrir 450 spámönnum Baals og sýndi fram á hver væri hinn eini sanni Guð. Æ ofan í æ sýndi Elía að hann reis undir nafni, en það merkir ‚Guð minn er Jehóva‘.

Elía var samt „maður eins og við“. (Jak. 5:17) Hann var stundum hræddur. Hann sá að Akab bætti ekki ráð sitt eftir kraftaverkin á Karmelfjalli. Auk þess sór Jesebel þess eið að taka hann af lífi. Hann missti kjarkinn. Hann lagði á flótta og varð svo niðurdreginn að hann sagði Jehóva að hann vildi deyja. Honum fannst hann einskis nýtur, engu betri en forfeður sínir sem voru löngu dánir. Jehóva hlustaði þolinmóður á hann. Skömmu síðar sagði Elía Guði sínum tvisvar að hann væri einmana og óttasleginn. Hann var sannfærður um að allt sem hann hafði lagt á sig væri til einskis. Jehóva fullvissaði hann um að hann væri ekki einn. Hann væri nýtur þjónn hans og verðmætur í augum hans. Jehóva valdi síðan handa honum aðstoðarmann, félaga sem gæti lært af honum og tekið við af honum þegar fram liðu stundir.

Stuttu síðar leitaði Elía manninn uppi en hann hét Elísa. Saman þjónuðu þeir Jehóva og boðuðu boðskap hans á þessum myrku tímum. Elísa aðstoðaði félaga sinn og lærði af honum. Með hjálp Jehóva endurheimti Elía kjarkinn og þjónaði honum trúfastur til æviloka.

Lestu frásögn Biblíunnar:

Til umræðu:

Hvernig sýndi Elía hugrekki?

Kafaðu dýpra

  1. 1. Hvers vegna var það vel valið að láta hrafna færa Elía mat? (it „Hrafn“ gr. 5 – wcgr) A

    Lior Kislev

    Mynd A

  2. 2. Hvaða kraftaverk vann Elía? (it „Elía“ nr. 1 gr. 11 – wcgr)

  3. 3. Þegar Elía færði fórnina á Karmelfjalli lét hann fylla stóran skurð af vatni. Hvar var hægt að finna vatn á þessum mikla þurrkatíma? (ba 17 gr. 3) B

    Todd Bolen/BiblePlaces.com

    Mynd B: Karmelfjall með Miðjarðarhaf í baksýn.

  4. 4. Hvað táknaði yfirhöfn Elía og af hverju kastaði hann henni yfir herðar Elísa? (w14 1.2. 12 gr. 3 – wcgr)

Hugleiddu og heimfærðu

  • Hvernig getum við líkt eftir Jehóva og auðveldað bræðrum okkar og systrum að tjá sig þegar þeim líður illa? (1. Kon. 19:1–18) C

  • Elía þjálfaði Elísa fúslega til að taka við af sér. Hvernig getum við líkt eftir honum þegar við þjálfum aðra og felum þeim hluta af verkefnum okkar?

  • Hvernig getur þú sýnt hugrekki eins og Elía?

Horfðu á heildarmyndina

  • Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?

  • Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?

  • Um hvað langar þig að spyrja Elía þegar hann rís upp?

Skoðaðu meira

Horfðu á myndband sem sýnir hvernig Jehóva styrkti Elía þannig að hann gæti gert verkefnum sínum góð skil.

Góð fyrirmynd um þolinmæði– spámennirnir – Elía (1:19)

Hvað getur ungt fólk lært af hugrekki Elía sem hann sýndi á Karmelfjalli?

„Verjum sanna tilbeiðslu“ („Biblíuverkefni“ á jw.org – wcgr)