23 DAVÍÐ
Hann barðist við risa
DAVÍÐ horfði þvert yfir dalbotninn og þarna stóð hann – risinn Golíat. Skjaldsveinninn sem stóð við hlið hans var líklega meðalmaður á hæð þannig að Golíat var eflaust risavaxinn að sjá, jafnvel úr fjarlægð. Hann var næstum þrír metrar á hæð og sterkur eftir því. Flestir hljóta að hafa fundið til smæðar sinnar þegar þeir sáu hann. En Davíð leit öðrum augum á Golíat og það veitti honum hugrekki.
Samúel spámaður hafði smurt Davíð og sagt að hann yrði konungur Ísraels þegar fram liðu stundir. Þaðan í frá leiðbeindi andi Jehóva honum með sérstökum hætti. Davíð var þekktur sem „hugrakkur og mikill stríðsmaður“ þó að hann væri enn of ungur til að ganga í herinn. Hann hafði komið á vígvöllinn af annarri ástæðu. Ísaí faðir hans hafði beðið hann um að fara þangað og athuga hvernig bræðrum hans gengi en þeir voru hermenn í ísraelska hernum. Davíð var líklega enn undir tvítugu þegar þetta gerðist.
Þegar Davíð kemur að Eladal sér hann hersveit Ísraelsmanna standa öðrum megin við dalinn og her Filistea hinum megin. Vikum saman hefur verið pattstaða hjá þeim. Kappinn Golíat gengur nú fram og lætur háðsglósunum rigna yfir Ísraelsmenn. Davíð trúði varla eigin eyrum – þessi heiðni hermaður dirfðist að gera lítið úr Jehóva Guði! Davíð fór að spyrjast fyrir hvernig Sál konungur myndi launa þeim sem tækist að þagga niður í þessum Filistea, greinilega til að hvetja hermennina til dáða. Elíab, elsti bróðir Davíðs, skammaði hann og sakaði hann um að hafa bara komið til að horfa á bardagann. En Davíð hélt áfram að reyna að stappa stálinu í mennina.
Sál konungi var sagt frá Davíð og lét kalla á hann. Davíð reyndi að hvetja hann og sagði: „Látum [Golíat] ekki draga úr okkur kjark.“ Hann bauð sig fram til að „fara og berjast við þennan Filistea“. Sál mótmælti í fyrstu því að hann var viss um að Davíð yrði drepinn á augabragði. En Davíð sagði konunginum að Jehóva hefði áður gefið honum kraft til að vinna ýmis afrek eins og að drepa ljón og bjarndýr sem réðust á sauði föður hans. Sál lét að lokum undan og fékk honum sín eigin herklæði og sverð. Davíð mátaði herklæðin en var ekki vanur slíkum búnaði þannig að hann fór úr honum og valdi sér sín eigin vopn – smalaprikið og slöngvu.
Á leiðinni niður í dalinn stoppaði Davíð í árfarvegi og náði sér í fimm ávala steina. Síðan gekk hann til móts við risavaxinn óvininn. Um leið og Golíat kom auga á unglinginn hló hann og hæddist að honum fyrir að koma á móti sér „með prik“ og átti þá sennilega við smalaprikið. Kannski tók hann ekki eftir slöngvunni sem var þekkt og öflugt vopn í hendi þeirra sem kunnu með hana að fara. Filisteinn ‚formælti Davíð við guði sína‘ og lofaði að gefa fuglum og villidýrum lík hans að éta.
Á unga aldri barðist Davíð við risavaxinn óvin til að verja nafn Jehóva.
Davíð svaraði: „Þú kemur á móti mér með sverð og tvö spjót en ég kem á móti þér í nafni Jehóva hersveitanna. Hann er Guð herfylkinga Ísraels sem þú hefur hæðst að.“ Þetta var ástæðan fyrir því að Davíð gat verið svona hugrakkur. Hann bar ekki sjálfan sig saman við Golíat heldur bar Golíat saman við Jehóva Guð! Þess vegna var Davíð sannfærður um að hann gæti fellt þennan risa og að Filistear myndu bíða mikinn ósigur.
Davíð tók á rás á móti óvininum. Hann stakk hendinni ofan í töskuna og náði sér í stein, setti hann í slöngvuna og sveiflaði henni. Ef Golíat tók fyrst núna eftir slöngvunni var það of seint. Davíð slöngvaði steininum af fullum krafti. Hann hitti beint í mark og steinninn grófst í enni risans sem „féll fram fyrir sig til jarðar“. Davíð hljóp að honum, tók sverð hans og hjó af honum höfuðið þar sem hann lá. Nú endurheimtu hermenn Ísraels hugrekkið. Þeir ráku upp heróp og réðust á Filisteana. Þjóð Guðs vann mikinn sigur þann dag. Hugrekki unga mannsins stappaði stálinu í mennina og eins hefur það verið trúuðu fólki til hvatningar allar götur síðan.
Lestu frásögn Biblíunnar:
Til umræðu:
Hvernig sýndi Davíð hugrekki á unga aldri?
Kafaðu dýpra
-
1. Nefndu nokkra hugrakka forfeður Davíðs. (Matt. 1:5, 6; Lúk. 3:31–38; w12 1.10. 24 gr. 3 – wcgr)
-
2. Hvaða rök eru fyrir því að þessi frásaga sé sönn? (wp16.5 13) A
Collection the Israel Antiquities Authority. Photo © The Israel Museum, by Meidad Suchowolski
Mynd A: Áletrun á steini frá níundu öld f.Kr. þar sem minnst er á „ætt Davíðs“.
-
3. Lýstu lífi Davíðs þegar hann var fjárhirðir. (w11 1.10. 17 gr. 1–18 gr. 1) B
Todd Bolen/BiblePlaces.com
Mynd B
-
4. Hvernig vitum við að Davíð var oft vanmetinn? (w21.03 3 gr. 6; it „Elíab“ nr. 4 gr. 1 – wcgr)
Hugleiddu og heimfærðu
-
Hvað getum við lært af Davíð sem hjálpar okkur að berjast við …
-
ótta og kvíða? C
Mynd C
-
rangar langanir?
-
-
Hvaða áhrif getur þú haft á aðra með því að vera hugrakkur? (1. Sam. 17:50–53)
-
Á hvaða fleiri vegu geturðu sýnt hugrekki eins og Davíð?
Horfðu á heildarmyndina
-
Hvað lærir þú um Jehóva af þessari frásögu?
-
Hvernig tengist þessi frásaga fyrirætlun Jehóva?
-
Um hvað langar þig að spyrja Davíð varðandi þennan atburð þegar hann rís upp?
Skoðaðu meira
Af þessu tónlistarmyndbandi fyrir börn lærum við hvað veitti Davíð hugrekki.
Hvernig geta bræður áunnið sér virðingu eins og Davíð og viðhaldið henni?
„Ungu menn – hvernig ávinnið þið ykkur traust annarra?“ (w21.03 2–5 gr. 1–11)

