Verum hugrökk og treystum Jehóva
Þessi bók getur hjálpað þér að byggja upp trú og hugrekki.
Bréf frá stjórnandi ráði
Það er einlæg von stjórnandi ráðs að þessi bók hjálpi þér að líkja eftir hugrökkum körlum og konum sem þjónuðu Guði forðum daga.
INNGANGSORÐ
Þú getur byggt upp hugrekki
Þessi bók er samin til að hjálpa þér að byggja upp hugrekki. Kynntu þér hvernig Jehóva veitti ófullkomnu fólki þann kjark sem það þurfti og hvernig hann getur líka hjálpað þér að vera hugrakkur.
1. HLUTI
1. HLUTI
Frá dögum ættfeðranna til dómaratímans
Í þessum hluta er rætt um fólk sem sýndi einstaka trú og hugrekki. Hann hefst með Enok og lýkur á dögum Samúels spámanns.
Tímalína fyrir 1. hluta
Yfirlit sem sýnir æviskeið biblíupersóna og mikilvæga atburði biblíusögunnar.
1 ENOK
Hann gekk með Guði
Enok skar sig úr fjöldanum í að minnsta kosti tvennum skilningi. Hvernig gat hann það? Hvað getum við lært af honum um hugrekki?
2 NÓI
Hann dæmdi heiminn
Hvað er líkt með okkar tímum og dögum Nóa? Kannaðu hvernig þú getur verið hugrakkur eins og Nói.
4 ABRAHAM
Fyrsti maðurinn sem háði réttlátt stríð
Hvað lærum við af því að Abraham skyldi leggja sig í hættu til að bjarga Lot bróðursyni sínum? Hvað fannst Jehóva um hugrekki hans og trú?
5 ABRAHAM
Erfiðasta prófraun ævinnar
Hvernig getum við verið hugrökk eins og Abraham og hlýtt Guði? Hvað lærum við um kærleika Jehóva af þessari frásögu?
6 REBEKKA
Hún flutti til fjarlægs lands
Rebekka sýndi einstakt hugrekki og trú. Hvað getum við lært af henni?
7 JAKOB
Hann verndaði fjölskyldu sína
Hvernig getur frásagan af Jakobi sannfært þig um að það sé þess virði að berjast fyrir blessun Jehóva?
8 JÓSEF
Hann stóðst freistingu
Lærðu af Jósef hvernig þú getur staðist freistingar og haldið út í prófraunum.
9 SIFRA, PÚA, AMRAM, JÓKEBED OG MIRJAM
Vegna trúar földu þau Móse
Ljósmæðurnar, foreldrar Móse og systir hans sýndu einstaka trú og hugrekki. Hvernig getum við líkt eftir þeim?
10 MÓSE
Hann tók rétta ákvörðun
Hvað ákvað Móse að gera og hvers vegna? Hvað getur þú lært af honum?
11 MÓSE
„Farðu til faraós“
Hvernig getur það sem Móse upplifði hjálpað okkur að treysta á stuðning Jehóva þó að okkur finnist við ekki hæf til að sinna ákveðnu verkefni?
12 KALEB
Hann barðist trúfastur fyrir Guð sinn
Hvernig getum við tekið Kaleb til fyrirmyndar ef við verðum fyrir þrýstingi til að „fylgja fjöldanum“?
13 JÓSÚA
Hann fylgdi óvenjulegum fyrirmælum
Hvaða óvenjulegu fyrirmæli fékk Jósúa frá Jehóva? Við hvaða aðstæður getum við líkt eftir Jósúa?
14 RAHAB
Hún kaus að standa Jehóva megin
Hvað getum við lært af því sem Rahab gerði? Hvaða blessun hlaut hún fyrir trú sína og hugrekki?
15 NAOMÍ OG RUT
Þær stóðu saman í sorginni
Á hvaða vegu sýndu Naomí og Rut hugrekki? Hvað getum við lært af þeim?
16 BARAK OG DEBÓRA
„Ég skal koma með þér“
Barak fór fram á að Debóra kæmi með sér í stríð. Var það merki um veikleika eða sterka trú?
17 JAEL
„Blessuð framar öllum konum“
Sagan af hugrekki Jaelar þegar hún drap óvin Jehóva lifir enn. Af hverju þurfum við meira en nokkru sinni fyrr að vera hugrökk eins og hún?
19 JEFTA OG DÓTTIR HANS
Þau efndu heit þótt það væri erfitt
Hvað getum við lært af Jefta og dóttur hans?
20 SAMSON
Hann bað Guð um styrk þegar hann var veikburða
Hvað gerði Samson eftir að honum urðu á mistök og hvað getum við lært af því?
21 SAMÚEL
Hugrakkur drengur sem flutti boðskap Jehóva
Við hvaða aðstæður getur ungt fólk þurft hugrekki til að gera það sem er rétt?
2. HLUTI
2. HLUTI
Frá konungatímanum til endurreisnar Jerúsalem
Í þessum bókarhluta er fjallað um karla og konur til forna sem sýndu mikla trú og hugrekki. Hann hefst með Jónatan, syni Sáls konungs, síðan er rætt um Davíð konung og honum lýkur með heimkomu þjóna Guðs úr útlegðinni í Babýlon og endurreisn Jerúsalem.
Tímalína fyrir 2. hluta
Yfirlit sem sýnir æviskeið biblíupersóna og mikilvæga atburði á konungatímanum fram til endurreisnar Jerúsalem.
22 JÓNATAN
Tryggð hans kallaði á hugrekki
Jónatan þurfti að velja hverjum hann sýndi tryggð. Hvernig vissi hann hvað hann átti að gera? Hvernig getum við líkt eftir honum?
23 DAVÍÐ
Hann barðist við risa
Davíð var þekktur fyrir að vera „hugrakkur og mikill stríðsmaður“. Hvernig hvatti hann aðra með fordæmi sínu? Hvaða áhrif getur þú haft á aðra með því að vera hugrakkur?
24 ABÍGAIL
Hún þurfti að glíma við tvo reiða menn
Hvað geta eiginmenn og eiginkonur lært af Abígail?
25 DAVÍÐ
Það kostaði hugrekki að fylgja samviskunni
Davíð fékk tækifæri til að hefna sín. Hvað hélt aftur af honum? Hvernig getum við líkt eftir honum?
26 NATAN
Hann sagði konunginum til syndanna
Hvað getum við lært af Natan ef við eigum vin sem gerir alvarleg mistök?
28 ASA
Hann þjónaði Jehóva heils hugar „alla ævi“
Hvað getum við lært af manni sem þjónaði Jehóva heils hugar?
30 EKKJAN Í SAREFTA
Hún sýndi trú og hugrekki í mikilli neyð
Hvernig er saga hennar hvatning fyrir okkur til að treysta Jehóva?
31 LITLA STÚLKAN FRÁ ÍSRAEL
Hernumið barn segir frá Guði sínum
Fordæmi þessarar stúlku getur verið þér hvatning til að segja frá trúnni, jafnvel við aðstæður sem þér finnst óþægilegar.
32 ELÍSA
„Jehóva, opnaðu augu hans“
Við hvaða aðstæður getur það styrkt okkur að „sjá“ englana með augum trúarinnar?
33 JÓJADA
Hann verndaði konunginn sem Jehóva valdi
Hvernig sýndi Jójada hugrekki? Hvernig getur þú verið hugrakkur eins og hann?
34 HISKÍA
„Hann hélt sig fast við Jehóva“
Hiskía sýndi mikið hugrekki og trú. Hvernig getum við líkt eftir honum?
36 JÓSÍA
Hann sneri þjóðinni aftur til Jehóva
Jósía átti erfiða æsku en barðist samt fyrir sannri tilbeiðslu af miklu hugrekki. Hvernig getum við líkt eftir honum?
37 DANÍEL
Hann var ákveðinn í að óhreinka sig ekki
Hvernig getur ungt fólk líkt eftir hugrekki Daníels og trúfesti? Hvernig getum við öll dregið lærdóm af honum?
38 HEBREARNIR ÞRÍR
Þeir „stóðust mátt eldsins“
Hebrearnir þrír voru hugrakkir jafnvel þegar dauðinn blasti við. Hvað getum við lært af þeim um eiginleika eins og auðmýkt, mildi og trúfesti?
39 ESTER
„Ef ég á að deyja þá dey ég“
Ester var skynsöm og hlýðin. Maðurinn hennar hlustaði á hana þótt voldugur væri. Hvað getum við lært af henni?
40 NEHEMÍA
Hann endurreisti múrinn
Hvað getum við lært af Nehemía um að fórna einhverju til að þjóna Jehóva betur? Hvernig geta öldungar tekið hann sér til fyrirmyndar?
3. HLUTI
3. HLUTI
Dagar Messíasar og fylgjenda hans
Í þessum bókarhluta er fjallað um trú og hugrekki fólks á fyrstu öld, þeirra á meðal Maríu, ungrar konu af Gyðingaætt, og Jóhannesar postula.
Tímalína fyrir 3. hluta
Yfirlit sem sýnir æviskeið biblíupersóna sem sagt er frá í 3. hluta. Einnig eru nefndir mikilvægir atburðir sem gerðust frá því á dögum Messíasar fram til síðustu æviára Jóhannesar postula.
41 SAKARÍA OG ELÍSABET
Þau voru réttlát í augum Guðs
Hvers vegna leit Jehóva svo á að Sakaría og Elísabet væru réttlát? Hvernig getum við líkt eftir þeim?
42 MARÍA
Hún þáði einstakt verkefni
María þáði einstakt og afar mikilvægt verkefni. Hvað veitti henni hugrekki til að halda út og ljúka því?
44 JÓHANNES SKÍRARI
‚Enginn er meiri‘
Jóhannes var hugrakkur maður sem lifði einföldu lífi. Kannaðu hvað hægt er að læra af honum.
45 PÉTUR
„Ég er syndugur maður“
Hvað getum við lært af Pétri um að halda áfram að þjóna Jehóva þrátt fyrir veikleika?
46 MARÍA MAGDALENA
„Ég hef séð Drottin!“
María helgaði sig því að styðja Jesú og fylgjendur hans. Hvernig getum við sýnt umhyggju og hugrekki eins og hún?
47 MARÍA SYSTIR LASARUSAR
„Hún gerði það sem hún gat“
Jesús hrósaði Maríu systur Lasarusar fyrir trú hennar og hugrekki. Hvernig sýndi hún hugrekki? Hvernig getum við líkt eftir henni?
48 STEFÁN
‚Hann hafði sterka trú og var fullur af heilögum anda‘
Stefán átti dauðadóm yfir höfði sér. Hvernig varði hann trú sína? Hvernig getur hann verið okkur hvatning til að vera trúföst?
49 PÉTUR
Hann varð klettur
Hvernig er fordæmi Péturs okkur hvatning til að treysta á Jehóva og sigrast á ótta?
50 SÁL FRÁ TARSUS
Hann breytti algjörlega um lífsstefnu
Hvað varð til þess að maður sem ofsótti kristna menn grimmilega sneri við blaðinu? Hvað getum við lært af honum?
51 BARNABAS
„Huggunarsonur“
Barnabas kom Sál til hjálpar og kynnti hann fyrir postulunum. Hvernig getum við sýnt hugrekki eins og hann og verið fús til að aðstoða aðra?
52 MARKÚS
„Hann er mér mikil hjálp“
Þrátt fyrir ákveðin vonbrigði hélt Markús áfram að þjóna trúsystkinum sínum og aðstoða þau. Hvað getum við lært af honum?
53 PÁLL
„Nú hvet ég ykkur til að herða upp hugann“
Hvernig sýndi Páll postuli hugrekki við aðstæður sem virtust vonlausar? Hvernig var hugrekki hans öðrum til hvatningar?
54 JÓHANNES POSTULI
Hugrakkur á myrkum tímum
Jóhannes postuli örvænti aldrei né missti kjarkinn. Hvernig getum við líkt eftir honum og haldið hugrökk áfram að þjóna Jehóva?
NIÐURLAGSORÐ
NIÐURLAGSORÐ
‚Verum hugrökk‘
Í Biblíunni eru ótal dæmi um hugrakka karla og konur, ungt fólk og roskið, sem tók afstöðu með Jehóva. Frásögurnar af þeim geta hvatt okkur til að líkja eftir þeim.
Því miður skilaði leitin engum niðurstöðum.

