Lærum af sögum Biblíunnar

Þessi bók fer með þig í ferðalag í gegnum söguna, allt frá frásögu Biblíunnar af sköpuninni til fæðingar Jesú, þjónustu hans og komu Guðsríkis.

Bréf frá stjórnandi ráði

Hvernig er hægt að nota þessa bók?

SAGA 1

Guð skapaði himininn og jörðina

Biblían segir að Guð hafi skapað himin og jörð. Af hverju skapaði Guð einn engil áður en hann skapaði nokkurn eða nokkuð annað?

SAGA 2

Guð skapaði fyrsta manninn og fyrstu konuna

Guð skapaði fyrsta manninn og fyrstu konuna og setti þau í Edengarðinn. Hann vildi að þau eignuðust börn og gerðu alla jörðina að paradís.

SAGA 3

Adam og Eva voru óhlýðin Guði

Hvað var sérstakt við eitt tré í Edengarðinum? Af hverju borðaði Eva ávöxt af trénu?

SAGA 4

Hann varð reiður og drap bróður sinn

Guð tók við fórn Abels en ekki fórn Kains. Kain varð mjög reiður þegar hann komst að því og gerði nokkuð hræðilegt.

SAGA 5

Örkin hans Nóa

Þegar vondir englar giftust konum á jörðinni eignuðust þau syni sem urðu risar sem fóru illa með fólk. Ofbeldi var út um allt. En Nói var öðruvísi – hann elskaði og hlýddi Guði.

SAGA 6

Átta manns lifa flóðið af

Það rigndi í 40 daga og 40 nætur þegar flóðið kom. Nói og fjölskylda hans voru í örkinni í rúmt ár. Loksins gátu þau farið út.

SAGA 7

Babelsturninn

Sumt fólk ákvað að byggja borg og turn sem myndi ná til himins. Af hverju lét Guð fólkið allt í einu tala mismunandi tungumál?

SAGA 8

Abraham og Sara hlýddu Guði

Af hverju sögðu Abraham og Sara skilið við borgarlífið og urðu flakkarar í Kanaanslandi?

SAGA 9

Loksins eignuðust þau son!

Hvernig myndi Guð standa við loforðið sem hann gaf Abraham? Hvor sona Abrahams myndi eiga í hlut – Ísak eða Ísmael?

SAGA 10

Munið eftir konu Lots

Guð lét rigna eldi og brennisteini yfir Sódómu og Gómorru. Af hverju var þessum borgum eytt? Af hverju ættum við að muna eftir konu Lots?

SAGA 11

Hann sýndi trú

Guð sagði við Abraham: ‚Taktu einkason þinn og færðu hann að fórn á fjalli í Móríalandi.‘ Myndi Abraham sýna trú?

SAGA 12

Jakob fékk arfinn

Ísak og Rebekka eignuðust tvíburastráka sem hétu Esaú og Jakob. Esaú átti að fá sérstakan arf því að hann fæddist á undan. Af hverju seldi hann arfinn fyrir skál af kássu?

SAGA 13

Jakob og Esaú verða aftur vinir

Hvernig fékk Jakob blessun frá engli? Hvað gerði Jakob til að þeir Esaú gætu orðið vinir aftur?

SAGA 14

Þræll sem hlýddi Guði

Jósef gerði það sem var rétt en gekk samt í gegnum gríðarlega erfiðleika. Af hverju?

SAGA 15

Jehóva gleymdi ekki Jósef

Þó að Jósef væri langt að heiman frá fjölskyldu sinni sýndi Guð að hann var með honum.

SAGA 16

Hver var Job?

Hann hlýddi Jehóva, jafnvel þegar það var erfitt.

SAGA 17

Móse valdi að þjóna Jehóva

Þegar Móse var ungbarn bjargaði snjallræði mömmu hans lífi hans.

SAGA 18

Logandi runni

Af hverju brann runninn ekki í logunum?

SAGA 19

Fyrstu þrjár plágurnar

Faraó leiddi ógæfu yfir þjóð sína vegna þess að hann var of stoltur til að hlýða einfaldri skipun.

SAGA 20

Næstu sex plágurnar

Hvernig voru þessar plágur ólíkar fyrstu þrem plágunum?

SAGA 21

Tíunda plágan

Þessi plága var svo mikið áfall að jafnvel hinn stolti faraó gaf sig loksins.

SAGA 22

Kraftaverkið við Rauðahafið

Faraó komst af í gegnum plágurnar tíu. En lifði hann af þetta kraftaverk Guðs?

SAGA 23

Þeir gáfu Jehóva loforð

Ísraelsmenn gáfu Jehóva sérstakt loforð þegar þeir tjölduðu við rætur Sínaífjalls.

SAGA 24

Þeir sviku loforðið

Fólkið framdi hræðilega synd á meðan Móse var að sækja boðorðin tíu.

SAGA 25

Tjaldbúðin

Sáttmálsörkin var í þessu sérstaka tjaldi.

SAGA 26

Njósnararnir tólf

Jósúa og Kaleb voru ólíkir hinum tíu mönnunum sem könnuðu Kanaansland.

SAGA 27

Þeir gerðu uppreisn gegn Jehóva

Kóra, Datan, Abíram og 250 aðrir menn gerðu sér ekki grein fyrir mikilvægum sannindum um Jehóva.

SAGA 28

Asni Bíleams talar

Asninn sá einhvern sem var Bíleam ósýnilegur.

SAGA 29

Jehóva valdi Jósúa

Guð gaf Jósúa leiðbeiningar sem eru líka gagnlegar fyrir okkur nú á dögum.

SAGA 30

Rahab faldi njósnarana

Borgarmúrar Jeríkó hrundu. En hús Rahab féll ekki þó að það væri byggt á borgarmúrnum.

SAGA 31

Jósúa og Gíbeonítarnir

Jósúa bað til Guðs: „Sól, stattu kyrr!“ Bænheyrði Guð hann?

SAGA 32

Nýr leiðtogi og tvær hugrakkar konur

Þegar Jósúa var dáinn fóru Ísraelsmenn að tilbiðja skurðgoð. Lífið varð erfitt en þeir fengu hjálp frá Barak dómara, Debóru spákonu og Jael með tjaldhælinn.

SAGA 33

Rut og Naomí

Tvær konur snúa aftur til Ísraels eftir að mennirnir þeirra eru dánir. Önnur þeirra, Rut, fór að vinna á ökrunum. Bóas tók eftir henni þar.

SAGA 34

Gídeon sigraði Midíanítana

Ísraelsmenn sárbáðu Jehóva um að hjálpa sér þegar Midíanítarnir gerðu þeim lífið erfitt. Hvernig sigraði lítill her Gídeons 135.000 manna óvinaher?

SAGA 35

Hanna biður Guð um son

Elkana fer með Hönnu, Peninnu og fjölskylduna til að tilbiðja Jehóva í tjaldbúðinni í Síló. Þar biður Hanna Guð um að gefa sér son. Innan við ári seinna fæðir hún Samúel.

SAGA 36

Loforð Jefta

Hverju lofaði Jefta og hvers vegna? Hvernig brást dóttir Jefta við loforði pabba síns?

SAGA 37

Jehóva talar við Samúel

Tveir synir Elí æðstaprests voru prestar í tjaldbúðinni. En þeir hlýddu ekki lögum Guðs. Hinn ungi Samúel var ólíkur þeim og Jehóva talaði við hann.

SAGA 38

Jehóva gerði Samson sterkan

Guð gerði Samson sterkan til að hann gæti barist við Filisteana. En þegar Samson tók slæma ákvörðun náðu Filistearnir honum.

SAGA 39

Fyrsti konungurinn í Ísrael

Guð gaf Ísraelsmönnunum dómara til að leiðbeina þeim, en þeir vildu fá konung. Samúel smurði Sál sem fyrsta konunginn en seinna hafnaði Jehóva honum. Af hverju?

SAGA 40

Davíð og Golíat

Jehóva velur Davíð til að vera næsti konungur í Ísrael og Davíð sannar að hann sé góður kostur.

SAGA 41

Davíð og Sál

Af hverju hatar annar maðurinn hinn? Hvernig bregst sá við sem er hataður?

SAGA 42

Jónatan var hugrakkur og trúfastur

Sonur konungsins og Davíð verða góðir vinir.

SAGA 43

Synd Davíðs konungs

Slæm ákvörðun hefur mikla erfiðleika í för með sér.

SAGA 44

Musteri handa Jehóva

Guð er ánægður með bón Salómons konungs og veitir honum mikinn heiður.

SAGA 45

Ríkinu skipt í tvennt

Margir Ísraelsmenn hætta að þjóna Jehóva.

SAGA 46

Það sem gerðist á Karmelfjalli

Hver er hinn sanni Guð? Er það Jehóva eða Baal?

SAGA 47

Jehóva styrkti Elía

Heldur þú að hann geti styrkt þig líka?

SAGA 48

Sonur ekkju lifnaði við

Tvö kraftaverk á sama heimilinu!

SAGA 49

Vondri drottningu er refsað

Jesebel gerir samsæri um að drepa Nabót til að geta stolið víngarði hans. Jehóva tekur eftir illsku hennar.

SAGA 50

Jehóva verndar Jósafat

Góði konungurinn Jósafat leitar til Guðs í bæn þegar óvinaþjóðir ógna Júdamönnum.

SAGA 51

Stríðskappinn og litla stelpan

Ung stelpa frá Ísrael segir húsmóður sinni frá miklum mætti Jehóva og það hefur kraftaverk í för með sér.

SAGA 52

Eldher Jehóva

Elísa sagði við þjón sinn: ‚Það eru fleiri með okkur en með þeim.‘

SAGA 53

Jójada var hugrakkur

Trúfastur prestur rís gegn vondri drottningu.

SAGA 54

Jehóva var þolinmóður við Jónas

Hvernig kom það til að risastór fiskur gleypti spámann Jehóva? Hvernig komst spámaðurinn á land? Og hvað kenndi Jehóva honum?

SAGA 55

Engill Jehóva verndaði Hiskía

Óvinir Júda segja að Jehóva muni ekki vernda fólk sitt. En þeir hafa rangt fyrir sér!

SAGA 56

Jósía elskaði lög Guðs

Jósía verður konungur átta ára gamall og hjálpar þjóð sinni að tilbiðja Jehóva.

SAGA 57

Jehóva velur Jeremía sem spámann

Það sem þessi ungi spámaður sagði gerði öldungana í Júda mjög reiða.

SAGA 58

Jerúsalem er eytt

Júdamenn halda áfram að tilbiðja falsguði og þess vegna yfirgefur Jehóva þá.

SAGA 59

Fjórir strákar sem hlýddu Jehóva

Ungir Júdamenn eru ákveðnir í að vera Jehóva trúir, jafnvel þó að þeir séu í þjónustu konungsins í Babýlon.

SAGA 60

Ríki sem verður alltaf til

Daníel útskýrir hvað skrýtni draumurinn hans Nebúkadnesars þýðir.

SAGA 61

Þeir beygðu sig ekki niður

Sadrak, Mesak og Abed Negó vilja ekki tilbiðja gullíkneski Babýlonarkonungs.

SAGA 62

Draumur um stórt tré

Draumur Nebúkadnesars segir til um framtíð hans.

SAGA 63

Skriftin á veggnum

Hvenær birtist þessi dularfulla skrift og hvað þýðir hún?

SAGA 64

Daníel í ljónagryfjunni

Biddu til Jehóva á hverjum degi eins og Daníel gerði.

SAGA 65

Ester bjargar þjóð sinni

Hún var útlendingur en fór samt úr því að vera munaðarlaus í að vera drottning.

SAGA 66

Esra kenndi fólkinu lög Guðs

Ísraelsmennirnir gáfu Guði sérstakt loforð eftir að þeir hlustuðu á Esra.

SAGA 67

Múrar Jerúsalem

Nehemía frétti að óvinirnir ætluðu að gera árás. Af hverju var hann ekki hræddur?

SAGA 68

Elísabet eignast barn

Hvers vegna var eiginmanni Elísabetar sagt að hann gæti ekki talað þangað til barnið myndi fæðast?

SAGA 69

Gabríel heimsækir Maríu

Hann sagði henni nokkuð sem breytti lífi hennar.

SAGA 70

Englar tilkynna fæðingu Jesú

Fjárhirðarnir sem heyrðu tilkynninguna brugðust fljótt við.

SAGA 71

Jehóva verndaði Jesú

Vondur konungur ætlaði að drepa Jesú.

SAGA 72

Þegar Jesús var ungur strákur

Af hverju voru kennararnir í musterinu hissa?

SAGA 73

Jóhannes gerir fólk tilbúið fyrir Jesú

Jóhannes verður spámaður þegar hann verður fullorðinn. Hann boðar að Messías sé að koma. Hvernig bregst fólk við boðskap hans?

SAGA 74

Jesús verður Messías

Hvað á Jóhannes við þegar hann segir að Jesús sé lamb Guðs?

SAGA 75

Djöfullinn freistar Jesú

Djöfullinn freistar Jesú þrisvar sinnum. Hvaða freistingar eru það? Hvernig bregst Jesús við þeim?

SAGA 76

Jesús rekur sölumennina út úr musterinu

Af hverju rekur Jesús dýr út úr musterinu og hrindir um koll borðum þeirra sem skipta peningum?

SAGA 77

Konan við brunninn

Samversk kona er hissa á að Jesús skuli tala við hana. Af hverju er hún það? Hvað segir Jesús henni sem hann hefur ekki sagt neinum öðrum?

SAGA 78

Jesús boðar ríki Guðs

Jesús býður nokkrum lærisveinum sínum að „veiða menn“. Síðar þjálfar hann 70 fylgjendur sína til að boða fagnaðarboðskap.

SAGA 79

Jesús gerir mörg kraftaverk

Hvert sem hann fer kemur veikt fólk til hans til að fá hjálp og hann læknar það. Hann reisir meira að segja litla stelpu upp frá dauðum.

SAGA 80

Jesús velur tólf postula

Fyrir hvað velur hann þá? Manstu hvað þeir hétu?

SAGA 81

Fjallræðan

Jesús kennir hópi fólks sem hefur safnast saman mikilvæg sannindi.

SAGA 82

Jesús kennir lærisveinum sínum að biðja

Hvað segir hann lærisveinum sínum að halda áfram að biðja um?

SAGA 83

Jesús gefur þúsundum að borða

Hvað segir þetta kraftaverk okkur um Jesú og Jehóva?

SAGA 84

Jesús gengur á vatni

Hvernig heldurðu að postulunum líði þegar þeir sjá þetta kraftaverk?

SAGA 85

Jesús læknar á hvíldardegi

Af hverju eru ekki allir ánægðir með það sem hann gerir?

SAGA 86

Jesús reisir Lasarus upp frá dauðum

Jesús fer líka að gráta þegar hann sér Maríu gráta. En tár þeirra breytast fljótt í gleðitár.

SAGA 87

Síðasta kvöldmáltíð Jesú

Jesús gefur postulum sínum mikilvægar leiðbeiningar þegar þeir borða síðustu kvöldmáltíðina saman.

SAGA 88

Jesús er handtekinn

Júdas Ískaríot kemur með stóran hóp af mönnum með sverð og kylfur til að handtaka Jesú.

SAGA 89

Pétur segist ekki þekkja Jesú

Hvað gerist í garðinum við hús Kaífasar? Og hvað var gert við Jesú inni í húsinu?

SAGA 90

Jesús deyr á Golgata

Af hverju lætur Pílatus drepa Jesú?

SAGA 91

Jesús er reistur upp frá dauðum

Hvað gerist dagana eftir að Jesús er tekinn af lífi?

SAGA 92

Jesús birtist fiskimönnunum

Hvað gerir hann til að fanga athygli þeirra?

SAGA 93

Jesús fer aftur til himna

En áður en hann gerir það gefur hann lærisveinum sínum mikilvægar leiðbeiningar.

SAGA 94

Lærisveinarnir fá heilagan anda

Hvaða kraft gefur heilagur andi þeim?

SAGA 95

Ekkert gat stoppað þá

Trúarleiðtogarnir sem létu drepa Jesú reyna núna að þagga niður í lærisveinunum. En þeir geta það ekki.

SAGA 96

Jesús velur Sál

Sál er ofsafenginn andstæðingur kristinna manna. En það á eftir að breytast.

SAGA 97

Kornelíus fær heilagan anda

Af hverju sendi Guð Pétur heim til þessa manns sem er ekki Gyðingur?

SAGA 98

Fólk í mörgum löndum verður kristið

Páll postuli og trúboðsfélagar hans hefja boðunina í fjarlægum löndum.

SAGA 99

Fangavörður kynnist sannleikanum

Hvernig tengjast illur andi, jarðskjálfti og sverð þessari sögu?

SAGA 100

Páll og Tímóteus

Þessir tveir menn voru góðir vinir og unnu saman í mörg ár.

SAGA 101

Páll er sendur til Rómar

Ferðin er hættuleg en postulinn lætur ekkert halda aftur af sér.

SAGA 102

Opinberun Jóhannesar

Jesús lætur hann sjá margar sýnir um framtíðina.

SAGA 103

„Við biðjum að ríki þitt komi“

Opinberunin sem Jóhannes fékk sýnir hvernig Guðsríki á eftir að breyta lífinu á jörðinni.